... your login credentials do not authorize you to access this content in the selected format. Access to this content in this format requires a current subscription or a prior purchase. Please select the WEB or READ option instead (if available). Or consider purchasing the publication.
Í augum margra er hafið hin nýju útmörk efnahagslífsins. Í hafinu felast fyrirheit
um gríðarlegar auðlindir og mikla möguleika til þess að örva efnahagsvöxt, atvinnu
og nýsköpun. Einnig er í auknum mæli litið á hafið sem nauðsynlegan þátt til þess
að takast á við mörg hinna alþjóðlegu vandamála sem heimurinn mun standa frammi fyrir
á komandi áratugum, allt frá alþjóðlegu fæðuöryggi og loftslagsbreytingum til orkuvinnslu,
auðlinda og bættrar heilbrigðisþjónustu. Þótt möguleikarnir sem í hafinu felast til
þess að takast á við þessi viðfangsefni séu gríðarlegir er hafið nú þegar undir álagi
vegna ofnýtingar, mengunar, minnkandi líffræðilegs fjölbreytileika og loftslagsbreytinga.
Ef nýta á möguleika hafsins til fulls verður því þörf á ábyrgri og sjálfbærri nálgun
að efnahagslegri þróun þess.
Til hagkerfis hafsins teljast atvinnuvegir sem byggja á hafinu (svo sem sjóflutningar,
fiskveiðar, vindmyllur á sjó, sjávarlíftækni), en einnig náttúruauðlindirnar og vistkerfisþjónustan
sem hafið veitir (fiskur, flutningaleiðir, upptaka koldíoxíðs o.þ.h.). Þar sem þetta
tvennt er óaðskiljanlega samtvinnað er í skýrslu þessari fjallað um fjölmarga þætti
vistkerfisþjónustu og stjórnunar á grundvelli vistkerfisþjónustu, jafnframt því sem
sjónum er beint að atvinnuvegum hafsins.
Hið hnattræna hagkerfi hafsins, mælt á grundvelli framlags atvinnugreina hafsins til
efnahagsframleiðslu og atvinnusköpunar, er verulegt. Samkvæmt bráðabirgðaútreikningum
sem byggja á tölum úr gagnagrunni OECD um hagkerfi hafsins var efnahagsframleiðsla
hafsins á árinu 2010 metin á 1,5 trilljónir bandaríkjadala, eða u.þ.b. 2,5% af heildarvinnsluvirði
(GVA) heimsins. Olía og gas af hafsbotni námu einum þriðja af heildarvirðisauka atvinnugreina
hafsins og í kjölfarið komu ferðaþjónusta á sjó og ströndum, þá siglingabúnaður og
hafnarstarfsemi. Atvinna sem tengdist hagkerfi hafsins beint nam um 31 milljón stöðugilda
á árinu 2010. Stærstu vinnuveitendurnir voru sjávarútvegsfyrirtæki, með einn þriðja
af heildinni, og strandferðaþjónusta með nærri fjórðung.
Efnahagsstarfsemi á hafinu eykst hratt og er aukningin fyrst og fremst drifin áfram
af hagvexti, auknum viðskiptum og hækkandi launum, veðurfari og umhverfi, svo og tækni.
Hins vegar setur hnignandi heilsufar hafsins skorður við frekari þróun hagkerfis þess.
Kolefnislosun af mannavöldum hefur aukist í tímans rás og hafið hefur tekið við miklu
af þessu kolefni með tilheyrandi súrnun. Einnig fer hitastig hafsins hækkandi, svo
og yfirborð þess, og hafstraumar eru að breytast, sem veldur því að líffræðilegur
fjölbreytileiki og heimkynni tegunda glatast, samsetning fiskistofna breytist og tíðni
alvarlegra veðurfarsatburða eykst. Enn versna horfurnar í framtíðarþróun á hafinu
ef litið er til mengunar frá landstöðvum, einkum vegna afrennslis frá landbúnaði,
kemískra efna og míkróplasts og stærri hluta úr plasti, sem berast í hafið með fljótum,
svo og vegna ofveiði og rýrnunar fiskstofna í mörgum heimshlutum.
Ef horft er fram til ársins 2030 er mögulegt að margar atvinnugreinar á hafinu geti
vaxið umfram heimshagkerfið í heild, bæði að því er varðar virðisauka og atvinnusköpun.
Þessir framreikningar benda til þess að milli 2010 og 2030, miðað við óbreyttar aðstæður
í heimsviðskiptum, geti hagkerfi hafsins meira en tvöfaldað framlag sitt til heildarvinnsluvirðis
og farið yfir 3 trilljónir bandaríkjadala. Sérstaklega er gert ráð fyrir miklum vexti
í fiskeldi, vindorku á hafi úti, fiskvinnslu, skipasmíðum og skipaviðgerðum. Einnig
eru möguleikar á því að atvinnuvegir hafsins skili mikilvægu framlagi til atvinnusköpunar.
Á árinu 2030 er gert ráð fyrir að þessir atvinnuvegir verði með um 40 milljónir stöðugilda
miðað við óbreyttar aðstæður í heimsviðskiptum. Hraðasti vöxturinn er áætlaður í vindorkuvinnslu
á hafi úti, fiskeldi, fiskvinnslu og hafnarstarfsemi.
Á komandi áratugum er gert ráð fyrir að framfarir í tækni og vísindum leiki mikilvægt
hlutverk, bæði í að takast á við umhverfisvandamálin sem vikið er að hér að framan
og í frekari þróun efnahagsstarfsemi á hafi úti. Nýsköpun varðandi þróuð efni, framfarir
í verkfræði og tækni á hafsbotni, skynjarar og myndhöndlun, gervihnattatækni, tölvuvæðing
og upplýsingagreiningartækni, sjálfstýrð kerfi – hver einasta atvinnugrein hagkerfis
hafsins – eiga eftir að verða fyrir áhrifum af þessum tækniframförum.
Þegar breytingar eru svo hraðar verður erfitt fyrir eftirlit og stjórnarhætti að halda
í við breytingarnar. Fjölskautun ágerist i heiminum um þessar mundir og sífellt verður
erfiðara að ná alþjóðlegu samkomulagi um hnattræn og svæðisbundin málefni sem miklu
máli skipta fyrir umhverfi og atvinnuvegi hafsins. Að minnsta kosti um fyrirsjáanlega
framtíð er gert ráð fyrir að eftirlit með starfsemi á hafi úti verði drifið áfram
af atvinnuvegunum sjálfum og að viðleitnin beinist að því að fella nýjar atvinnugreinar
á hafinu undir það sundraða regluverk sem fyrir er.
Framtíðarvöxtur atvinnuvega hafsins á þann mælikvarða sem gert er ráð fyrir í skýrslu
þessari undirstrikar hið vaxandi álag sem er á auðlindir hafsins og hafrýmið sjálft,
sem þegar er undir miklu álagi, ekki síst í efnahagslögsögum þar sem mest af starfseminni
á sér stað. Að ekki skuli hafa verið unnt að takast á við þetta álag með árangursríkum
og tímanlegum hætti stafar að miklum hluta af því að sögulega hefur stjórnun starfsemi
á hafinu skipst eftir atvinnuvegum. Að miklu leyti til þess að bregðast við vaxandi
álagi hefur á undanförnum árum orðið vart við verulega fjölgun landa og svæða sem
nú marka sér langtímastefnu um bætta umsjón með hafinu í eigin efnahagslögsögu. Hins
vegar er margt sem kemur í veg fyrir árangursríkari og samræmdri stjórnun hafsvæða
og á því þarf að taka í náinni framtíð.
Í því skyni að bæta horfurnar varðandi langtímaþróun nýrra atvinnuvega á hafinu og
framlag þeirra til hagvaxtar og atvinnusköpunar en hafa jafnframt stjórn á hafinu
með ábyrgum og sjálfbærum hætti eru í skýrslu þessari sett fram fjölmörg tilmæli sem
miða að því að bæta sjálfbæra þróun hagkerfis hafsins.
Stuðla að frekari alþjóðlegri samvinnu um sjávarvísindi og sjávartækni í því skyni
að örva nýsköpun og styrkja sjálfbæra þróun hagkerfis hafsins.
Í þessu felst meðal annars: að ráðast í samanburðargreiningu og úttektir á hlutverki
opinberrar stefnumótunar varðandi sjávarklasa víða um heim, einkum að því er varðar
árangurinn sem slík stefnumótun skilar til örvunar og stuðnings við tæknilega nýsköpun
þvert á þá atvinnuvegi sem hafinu tengjast, að koma á alþjóðlegum tengslanetum til
skoðanaskipta og deilingar á reynslu af því að stofna til afburðasetra, nýsköpunarmiðstöðva
og annarrar aðstöðu til nýsköpunar á sviði sjávartækni þvert á atvinnugreinar sem
tengjast hafinu, og að bæta deilingu á tækni og nýsköpun meðal þjóða sem eru á mismunandi
þróunarstigum.
Að styrkja samræmda stjórnun hafsvæða
Einkum og sér í lagi ætti í þessu að felast aukin notkun á efnahagslegri greiningu
og hagrænum tækjum til samræmdrar stjórnunar hafsvæða, t.d með því að stofna alþjóðlegan
vettvang til deilingar á þekkingu, reynslu og bestu aðferðum og með því að herða á
viðleitninni til þess að meta efnahagslegan árangur af opinberri fjárfestingu í rannsóknum
og athugunum á hafinu. Einnig ætti að miða að því að stuðla að nýsköpun varðandi stjórnhætti,
ferli og þátttöku hagsmunaaðila með það fyrir augum að gera samræmda stjórnun hafsvæða
árangursríkari og skilvirkari með sem víðtækastri þátttöku.
Að bæta tölfræðilegan og aðferðafræðilegan grunn í einstökum ríkjum og á alþjóðavettvangi
til þess að mæla umfang og afkomu atvinnuvega hafsins og framlag þeirra til hagkerfisins
í heild.
Meðal annars gæti þetta falist í frekari þróun á gagnagrunni OECD um hagkerfi hafsins
(Ocean Economy Database).
Byggja upp frekari færni til að spá fyrir um atvinnuvegi hafsins,
þ.m.t. með mati á framtíðarbreytingum á atvinnuvegum hafsins og frekari þróun á núverandi
getu OECD til þess að útbúa spálíkan um framtíðarþróun hagkerfis hafsins á alheimsmælikvarða.
Hafið samband við Réttinda- og þýðingareiningu OECD, framkvæmdanefnd fjölmiðlunar
og almannamálefna ef frekari upplýsinga er
þörf hjá: [email protected] eða með faxi: +33 (0)1 45 24 99 30.
OECD Rights and Translation unit (PAC) 2 rue André-Pascal, 75116 Paris, France